Ástandsgreiningartæknir / Condition Monitoring Technician

Posted: Tuesday, 17 March 2026
Valid Thru: Thursday, 16 April 2026
Index Requested on: 03/17/2026 02:29:07
Indexed on: 03/17/2026 02:29:07

Location: Reyðarfirði, 6, , IS

Industry: Advertising and Public Relations
Occupational Category: 17-3027.00 - Architecture and Engineering
Type of Employment: FULL_TIME

Alcoa USA Group is hiring!

Description:

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri. Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum einstaklingi í starf ástandsgreiningartæknir. Teymið sinnir ástandsgreiningu á vélbúnaði með það að markmiði að greina bilanir áður en þær valda rekstrartruflunum. Helstu mæliaðferðir eru titringsmælingar, hátíðnihljóðmælingar, straumrásargreining á rafmótorum (MCA), hitamyndatökur og olíugreiningar.

1. Almennt um starfið

Markmið og tilgangur starfs

Sinna ástandsgreiningum á búnaði skv. viðhaldsáætlunum þ.a. hægt sé að finna bilanir í tíma og áður en þær stöðva framleiðslu.

Verksvið eða meginverkefni starfsins

Taka mælingar af búnaði sem er í ástandsgreiningaráætlun

Vinna úr mæliniðurstöðum og upplýsa um ástand búnaðar.

Vinna með viðhalds- og áreiðanleikasérfræðingum í að hámarka virkni ástandsgreiningaráætlunar.

Ábyrgð í starfi

Ástandsgreiningartæknir starfar í umboði leiðtoga. Meginábyrgð ástandsgreiningartæknis er framkvæmd mælinga á öruggan og vandaðan hátt og upplýsa viðeigandi aðila um hnignandi ástand búnaðar í tíma.

2. Grunnkröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er

Krafist er sveinsprófs eða hærri menntunar.

Reynsla sem krafist er

· Góð starfsreynsla á vinnumarkaði. Starfsreynsla í framleiðslufyrirtæki er kostur.

· Þriggja ára starfsreynsla sem iðnaðarmaður.

Hæfni sem krafist er

· Góð enskukunnátta.

· Góð tölvukunnátta og vilji til að læra á og nota tölvur og sérhæfð mælitæki.

Samskiptafærni og samstarfsaðilar í starfinu

Náin samskipti við skipuleggjendur viðhalds, viðhaldsleiðtoga, viðhalds- og áreiðanleikasérfræðinga.

Starfa með framleiðslu- og iðnaðarmönnum við mælingar á búnaði.

Samskipti við þjálfunar- og þjónustuaðila fyrir þann greiningarbúnað sem notaður er hverju sinni.

3. Annað

Annað sem krafist er

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.

Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kolfinna Finnsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið kolfinna.finnsdottir@alcoa.com

Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is.

Umsóknarfrestur er til og með 30. mars.

_________________________________________________________________________________

Alcoa Fjarðaál seeks a highly collaborative individual for the role of condition monitoring technician. The condition monitoring team conducts regular condition analyses on hardware to identify faults before they lead to operational interruptions. The primary measurement methods used include vibration tests, high-frequency sound measurements, Motor Circuit Analyses (MCA), thermal imaging, and oil analysis.

1. General Information About the Position

Purpose and Objective of the Role

To carry out condition monitoring of equipment according to maintenance plans, in order to identify faults in a timely manner and before they interrupt production.

Scope or Main Responsibilities of the Role

  • Conduct measurements on equipment that is included in the condition monitoring program.
  • Process measurement results and report on the condition of the equipment.
  • Work with maintenance and reliability specialists to maximize the effectiveness of the condition monitoring program.

Responsibilities

The Condition Monitoring Technician works under the authority of the team leader.
The main responsibility of the technician is to perform measurements in a safe and professional manner and to inform the appropriate parties of any deterioration in equipment condition in a timely manner.

2. Basic Requirements

Education and/or Certifications Required

A journeyman’s certificate (technical trade qualification) or higher education is required.

Work Experience Required

  • Solid work experience in the labor market. Experience in a manufacturing environment is an advantage.
  • Three years of experience as an industrial tradesperson.

Required Skills

  • Good English skills.
  • Good computer skills and willingness to learn and use computers and specialized measuring equipment.

Communication Skills and Key Work Relationships

  • Close communication with maintenance planners, maintenance team leaders, and maintenance and reliability specialists.
  • Work alongside production and industrial workers when carrying out equipment measurements.
  • Communication with training and service providers for the diagnostic equipment used.

3. Other

Other Requirements

Alcoa Fjarðaál is a large and vibrant workplace that operates around the clock. We work together to create export value in a safe and responsible manner, 24 hours a day, every day of the year. Alcoa Fjarðaál offers competitive wages, manageable work schedules, and excellent staff facilities. Safety and health are always our top priorities, and we provide ample opportunities for training, education, and professional development.

Alcoa's values are integrity, excellence, care, and courage.

More information is available from Kolfinna Finnsdóttir, talent acquisition specialist by e-mail at kolfinna.finnsdottir@alcoa.com.

We are values led, vision driven and united by our purpose of transforming raw potential into real progress. Our commitments to Inclusion, Diversity & Equity include providing trusting workplaces that are safe, respectful and inclusive of all individuals, free from discrimination, bullying and harassment and that our workplaces reflect the diversity of the communities in which we operate.

Following Alcoa Fjarðaál’s Equal Employment Opportunity Policy and the Icelandic Gender Equality Act No. 150/2020, individuals of all genders are encouraged to apply.

For applications, please refer to Alcoa.is.

The application deadline is up to and including, March 30th.

Um starfsstöðina

Álver Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði er eitt nútímalegasta og tæknivæddasta álver í heimi, og það er til fyrirmyndar hvað varðar umhverfisvernd. Álver Fjarðaáls er það stærsta á Íslandi með framleiðslugetu allt að 360.000 tonn af áli á ári. Starfsmenn okkar vinna saman að því að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og fjölskylduvænt vinnuumhverfi með áherslu á náið samstarf við nærsamfélagið og hagsmunaaðila.

Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Þetta er staður þar sem þú hefur vald til að gera þitt besta, vera þú sjálf/ur sjálf og upplifa sanna tilfinningu fyrir því að tilheyra. Slástu í hópinn og mótaðu starfsferil þinn með okkur!

Vinnan þín. Veröldin þín. Mótaðu þau til betri vegar.

Responsibilities:

Please review the job description.

Educational requirements:

  • high school

Desired Skills:

Please see the job description for required or recommended skills.

Benefits:

Please see the job description for benefits.

Apply Now